Ólafur í Fossvoginum grýttur þegar hann sat úti í pottinum: „Sátum í pottinum að njóta“

„Núna rétt í þessu voru 3 unglingsstrákar að kasta eggjum í húsið okkar,“ segir Hanna, íbúi í Fossvoginum, í færslu á Facebook. „Foreldrar unglingsdrengja viljið þið ræða við ykkar krakka svona hegðun er ólíðandi!(er sjálf foreldri unglingsdrengja og þeir misstu andlitið yfir þessu).“

Hringdi hún á lögregluna.

Þetta er ekki einsdæmi í Fossvoginum, Ólafur nokkur segir í athugasemd við færslu Hönnu að óprúttnir aðilar hafi grýtt hann þegar hann, ásamt öðrum, sat úti í heita pottinum.

„Við fengum yfir okkur lúkur af möl/grjóti þar sem við sátum í pottinum að njóta… þeir eru til á myndavél…!,“ segir Ólafur.

Þá segist kona að nafni Cecilia einnig hafa lent í eggjakasti í gærkvöldi.