Ólafur hættir hjá reykjalundi - forstjóri reykjalundar sagði upp í síðustu viku - síbs neitar enn að tjá sig um málið

Ólafur Þór Ævarsson, sem eingöngu hefur starfað í rúmlega hálfan mánuð sem framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi, hefur ákveðið að segja upp störfum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ólafur sendi frá sér.

Ólafur segir að hann hafi ráðið sig til starfa hjá Reykjalundi því hann hefði sterka löngun að gera gagn. Sú löngun virðist ekki hafa enst lengi.

„Ég sótti nýverið um starf framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi og eftir að hafa verið metinn vel hæfur af tveimur hæfnisnefndum, en önnur þeirra var á vegum Landlæknis, var mér boðið starfið sem ég þáði. Ég hóf störf fyrir aðeins rúmlega hálfum mánuði.  Ég réði mig til starfa á Reykjalund því ég hafði sterka löngun til að gera gagn og taka þátt í því glæsilega starfi sem þar fer fram. Í krafti fyrri reynslu minnar á þessu sviði sá ég mikla möguleika til framtíðar í þróun endurhæfingar - ekki síst hvað varðar geðræna líðan og álagsveikindi.“  

Þá segir Ólafur að hann hafi ekki tekið þátt í þeim deilum sem hafa komið upp á Reykjalundi sem Hringbraut hefur ítarlega fjallað um. Þær deilur hafi valdið honum miklar áhyggjur og segir hann að erfitt hafi verið að starfa við það ástand.

„Ég hef ekki á neinn hátt verið þátttakandi í þeim deilum sem hafa risið á staðnum. Þær hafa engu að síður valdið mér miklum áhyggjum og gert mér erfitt að starfa.  Vonir mínar um að geta við þessar aðstæður tekið þátt í að leiða starfsemina inn í framtíðina hafa dvínað.  Niðurstaðan mín er því sú að best sé að ég láti af störfum á Reykjalundi. Ég óska þess að það geti orðið þáttur í því að stuðla að sátt til framtíðar og að mikilvæg starfsemi Reykjalundar fái að blómstra áfram sjúklingum til heilsubótar. Ég óska starfsfólki Reykjalundar og þeim sem taka nú við stjórn starfseminnar velfarnaðar og velgengni í þeirra mikilvægu verkefnum.“  

Herdís Gunnarsdóttir, sem var settur forstjóri Reykjalundar, sagði einnig upp á föstudaginn. Hún starfaði einnig eingöngu í nokkrar vikur hjá Reykjalundi. Hringbraut hefur reynt ítrekað að ná sambandi við Guðmund Löve, framkvæmdastjóra SÍBS, vegna málsins í nokkrar vikur með símtölum, tölvupósti og jafnvel heimsóknum í höfuðstöðvar SÍBS. Þá neitar Sveinn Guðmundsson, stjórnarformaður SÍBS að ræða við Hringbraut vegna málsins.