Í gærkvöldi tók fulltrúaráð VR í Lífeyrissjóði verzlunarmanna ákvörðun um að afturkalla umboð stjórnarmannanna fjögurra sem VR skipar í stjórn sjóðsins og skipa nýja í þeirra stað. Ástæða þess að VR kaus að grípa til þessara aðgerða er sú að þann 24. maí síðastliðinn hækkaði Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytilega vexti verðtryggðra sjóðfélagalána úr 2,06 prósentum upp í 2,26 prósent, en tveimur dögum fyrr hafði Seðlabanki Íslands lækkað stýri vexti um hálft prósentustig.
„Þetta er bara ekki góð staða og hæpið að þetta standist lög og samþykktir sjóðsins,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, í samtali við Mbl.is. FA er eitt af fimm samtökum atvinnurekenda sem skipa í stjórn LV.
„Það er gert ráð fyrir því að stjórnin sé sjálfstæð í sínum störfum og starfi í þágu sjóðfélaga. Ég hef ekki séð nein rök fyrir því að ákvörðun stjórnarinnar gangi gegn hagsmunum sjóðsins eða sjóðfélaga. Það eru algjörlega málefnaleg rök fyrir ákvörðunum sem stjórnin hefur tekið,“ bætir hann við.
Spurður nánar út í ákvarðanir stjórnarinnar, segist hann ekki ætla að ræða efnislega hverja ákvörðun stjórnarinnar fyrir sig.
Ólafur segist ekki vilja ræða efnislega hverja ákvörðun stjórnarinnar fyrir sig. „Til þess erum við með stjórnarmann sem uppfyllir kröfur Fjármálaeftirlitsins og er undir ströngu aðhaldi og eftirliti. Við einfaldlega treystum því fólki sem við tilnefnum í stjórnina.“
Hann segir að lokum að FA eigi eftir að rýna í stöðuna, en það hefur ekki verið gert þar sem aðalmaður og varamaður sem skipaðir voru í stjórn sjóðsins fyrir FA eru í sumarleyfi „Þannig að við höfum ekki haft tækifæri til þess að ræða þetta við okkar fólk í stjórninni.“
Stjórnarformaður LV sagði af sér
Í kjölfar ákvörðunar fulltrúaráðs VR í LV fann Ólafur Reimar Gunnarsson sig knúinn til að segja af sér sem stjórnarformaður sjóðsins. Á sama tíma sagði hann af sér stjórnarmennsku hjá VR og öllum trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Í yfirlýsingu sagði hann meðal annars um ákvörðun sína:
„Ég tel […] illa að mér og öðrum stjórnarmönnum sjóðsins vegið að væna okkur um óheilindi og bregðast við með svo harkalegum og ómálefnalegum hætti sem formaður VR og stjórn félagsins hafa gert, og nú síðast fulltrúaráð félagsins í LV. Vinnubrögð formanns og meirihluta stjórnar hafa verið forkastanleg og get ég ekki hugsað mér að starfa lengur í þessum félagsskap og segi því hér með skilið við hann.“