Lögmaður Ólafs Ólafsson athafnamanns, sem nú afplánar fangelsisdóm á Kvíabryggju fyrir þátt sinn í Al Thani-málinu, hefur farið fram á endurupptöku málsins á þeim forsendum að dómskerfið hafi farip mannavilt.
Ólafur hlaut fjögurra og háals árs fangelsisdóm fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik í umræddu sakamáli, en hans mati og lögmanns hans lagði Hæstiréttur rangt mat á símtal tveggja manna þar sem annar vísar til samtals við ónafngeindan mann sem kallaður var "Óli" um tiltekna þætti viðskiptanna sem málið snerist um. Í tilkynningi frá lögmanni Ólafs segir að komið hafi fram að óumdeilt sé að hér hafi verið átt við Ólaf Arinbjörn Sigurðsson lögmann, ekki Ólaf Ólafsson skjólstæðing sinn. Lögmaðurinn segir um grundvallaratriði að ræða; dómurinn hafi einfaldlega dregið ranga ályktun af símtalinu, skjólstæðingi sínum í óhag sem breyti öllum málatilbúnaðinum í hans tilviki.