Fjöldi frambjóðenda til Bessastaða skipti ekki máli en aftur á móti skiptir máli hvert orðspor okkar er í útlöndum. Höldum við reisn okkar? Það er ein ástæða þess að Ólafur Ragnar Grímsson hefur tekið ákvörðun um að fara enn eina ferðina fram. Hann segir að atburðir liðinna vikna sýni að orðspor landsins hefði skaðast og átti þar við mál forsætisráðherra og fleiri sem tengjast aflandsmálum.
Þetta kom fram á blaðamannafundi sem nú stendur yfir á Bessastöðum.
Hann segist ekki byrjaður að plana kosningabaráttu en að síðast hafi hann greitt að verulegu leyti fyrir hana úr eigin vasa.