Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, segir Ríkisútvarpið stunda hatursáróður fyrir að endursýna þátt Spaugstofunnar frá janúar 2008 þar sem Ólafur var sýndur sem sjúklingur með óskilgreind geðræn vandamál.
„Hatursáróður Spaugstofunnar frá 2008 endursýndur á RÚV. 13 árum síðar!,“ segir Ólafur í færslu á Facebook. „Þar var ég sýndur í gervi heiladauðs einstaklings í hjólastól.“
Ríkisútvarpið hefur síðustu misseri endursýnt alla þætti Spaugstofunnar frá upphafi. Eru þættirnir aðgengilegir í gegnum RÚV-appið. Nú í vetur hafa þættir frá vetrinum 2007 og 2008 endursýndir á daginn.
Þátturinn sem um ræðir var fyrst sýndur í janúar 2008 og fjallar hann nær eingöngu um átökin í borgarstjórn á þeim tíma. Það tímabil er líklega það viðburðarríkasta í sögu borgarinnar. Þá hafði verið myndaður meirihluti með Frjálslynda flokknum, þá með Margréti Sverrisdóttur í forsvari á meðan Ólafur var í veikindaleyfi. Þegar hann sneri aftur myndaði hann meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og varð borgarstjóri.
Mikið var rætt á þeim tíma hvort Ólafur glímdi við geðræn vandamál og var það undirstrikað í þætti Spaugstofunnar.
Í þættinum var Ólafur klæddur í föt sjúklings af Landspítalanum og var hann augljóslega mjög ringlaður. Þegar rætt var við hann hringdi gauksklukka sem söng „kú kú,“ og svaraði þá persóna Ólafs: „Sömuleiðis“. Svo í lok þáttarins var hann í sjúkrarúmi.

Ólafur mótmælti þættinum harðlega á sínum tíma og er ekki sáttur við endursýninguna.
„Enn í dag er dregin upp sú ímynd af mér í rískisfjölmiðlinum sem vinstri menn vilja halda á lífi - enda nær hatur þeirra margra á mér út yfir gröf og dauða,“ segir hann.
„Er hægt að stöðva þennan hatursleka?“
Smelltu hér til að sjá þáttinn í heild sinni.