Ólaf­ur Arnar­son seg­ir fjár­mál­a­ráð­herr­a eiga „vaf­a­sam­an fjár­mál­a­fer­il að baki“

Hag­fræðingurinn Ólafur Arnar­son skýtur föstum skotum á Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í grein sem birtist í Frétta­blaðinuí dag. Ólafur rekur sögu Eng­eyjar­ættarinnar í stuttu máli:

„Bjarni Bene­dikts­son eldri rak stjórn­mála­arm Eng­eyjar­ættarinnar. Bróðir hans Sveinn, afi Bjarna Bene­dikts­sonar yngri, sá um við­skipta­hliðina. Sveinn varð lykil­maður hjá Síldar­verk­smiðjum ríkisins og Bæjar­út­gerð Reykja­víkur. Þriðji bróðirinn, Pétur, varð banka­stjóri Lands­bankans. 2003 tók Bjarni Bene­dikts­son yngri við pólitískum armi fjöl­skyldunnar og settist á Al­þingi.“

Þá segir hann frá 130 milljarða af­skriftum vegna fé­laga sem Bjarni Bene­dikts­son stýrði er tengjast N1 og Vafningi. En á nú­virði 2021 eru 130 milljarðar í októ­ber 2008 meira en 200 milljarðar.

„Þeir sem töpuðu voru ís­lenskir líf­eyris­sjóðir og bankar sem líf­eyris­sjóðirnir áttu stóran hlut í. Ekki má gleymast að líf­eyris­sjóðirnir eru í eigu fólksins í landinu – kjós­enda,“ skrifar Ólafur.

Ólafur segir Eng­eyjar­ættina hafa notað ýmis fé­lög á borð við Haf­silfur, BNT, Þátt, Mátt og Sáttan til fjár­festinga og lán­töku og hafi sum þeirra verið aflands­fé­lög.

„Þessi fé­lög, á­samt Vafningi og N1, voru notuð í lán­töku­hring­ekju þar sem bréf í einu fé­lagi voru sett að veði fyrir lán­töku annars. Tekin voru lán langt um­fram leyfi­leg há­marks­lán Ís­lands­banka til tengdra aðila, þrátt fyrir að eignar­hald fé­laganna væri á höndum sömu aðila. Bjarni var í for­svari fyrir fé­lögin.“

Þá rifjar hann upp hneykslis­málið í kringum Pana­ma­skjölin 2017 þegar upp komst að fjár­mála­ráð­herra hefði verið einn eig­enda aflands­fé­lags að nafni Falston á Seychelles-eyjum án þess að gera grein fyrir því í lög­bundinni hags­muna­skráningu þing­manna.

„Falston var ætlað til fast­eigna­fjár­festinga í Dúbaí og víðar. Bjarni þóttist fátt þekkja til fé­lagsins þótt til séu tölvu­póstar sem benda til að hann hafi notað ferð á vegum Al­þingis til Suður-Ameríku í þágu fé­lagsins.“

Eins og al­ræmt er var lög­bann sett á um­fjöllun Stundarinnar um málið fyrir Al­þingis­kosningarnar 2017. Ólafur tekur allan vafa af með til­gangi greinarinnar í lokin þegar hann skrifar:

„Bjarni hefur verið for­maður Sjálf­stæðis­flokksins í 12 ár. Ekki virðist það trufla flokks­menn að hann eigi vafa­saman fjár­mála­feril að baki, um fjórðungi kjós­enda.“