Í þættinum Undir yfirborðið sem stýrt er af Ásdísi Olsen er fjallað um það sem er falið og fordæmt. Í fyrsta þættinum var kafað djúpt í það sem er að gerast í andlegu undirheimunum og Ayahascha tekið sérstaklega fyrir. Við erum að tala um DMT efni sem eru meðvitundarvíkkandi, sem örva framleiðslu gleðihormónsins serótonin og valda jafnvel ofskynjunum. Þar hefur fólk lýst stórkostlegri guðlegri reynslu og aðrir vitundarvakningu. Er hópur, sem fer sístækkandi sem telur að megi nota efnið til að lækna fólk. Svo eru aðrir sem fordæma notkun á því og telja það hættulegt.
Einn af viðmælendum Ásdísar í þættinum var Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik. Í þættinum kemur ekkert fram um það hvort hann hafi prufað að neyta DMT en Ólafur er andlega þenkjandi. Eftir að ferlinum lauk hefur hann sökkt sér enn frekar inn í andleg málefni.
Hann upplýsir að í Mexíkó hafa sérstakir kaktusar verið nýttir í svipuðum tilgangi og Ayahascha og virðing borin fyrir plöntunni. Hér á Íslandi eru sveppir líka nýttir og sagði Ólafur að þeir sem þekki kosti þeirra beri virðingu fyrir þeim en sveppirnir hafi verið teknir frá okkur. Þar af leiðandi sé ekki til staðar nægileg þekking eða hefð fyrir því að nýta þá í andlegum tilgangi. Ólafur sagði í þættinum:
„Náttúrunni var líka rænt frá okkur. Þetta kristna hugmyndakerfi, stofnun, okkur var bannað að sitja í hring úti í náttúrunni, sveppirnir voru teknir frá okkur,“ sagði Ólafur og bætti við:
„Við máttum ekki sitja með sveppate og diskútera stjörnurnar lengur vegna þess að svarið var inni í kirkjunni. Þar vorum við látin sitja hlið við hlið og helst ekki horfa á hvort annað. Þar var sannleikurinn karllægur, konan bæld niður og allt gyðjulegt og allt femínískt var tekið frá okkur.“
Þá sagði Ólafur einnig:
„Við erum að byrja að fatta þetta. Þetta er allt karllægt. Bankarnir eru karllægir, alþingi er karllægt ...“
Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum. Ef þú vilt sjá þáttinn í heild sinni, smelltu þá hér.