Fanginn Ólafur Ólafsson, sem nú afplánar hálfs fimmta árs dóm á Kvíabryggju vegna aðildar sinnar að Al-Thani málinu segir Hæstarétt hafa lítlsvirt mannréttindi sín og látið almenningsálitið stjórna niðurstöðu sinni.
Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við hann í Viðskiptablaðinu í gær þar sem hann vandar dómskerfinu ekki kveðjurnar. Hann segist fyrst hafa orðið undrandi á rannsókn málsins þegar embætti sérstaks saksóknara lagði ekki fram gögn í málinu sem voru sakborningum hagstæð. Allt hafi verið á einn veg í rannsókninni, þeim þáttum málsins sem gagnast hefðu honum og félögum hans hefði markvisst verið stungið ofan í skúffu og ekki verið lagðir fram: \"Við þurftum að grafa þetta upp,\" segir hann í viðtalinu og segir það hafa verið sérstaka tilfinningu að upplifa að þetta hafi ekki lengur verið hlutlaus rannsókn heldur kappleikur um að ná einhverri fyrirfram ákveðinni niðurstöðu: \"Það er skelfileg upplifun að finna að maður geti á engan hátt treyst heilindum embættis sérstaks saksóknara,\" segir Ólafur ennfremur í viðtalinu og bætir við: \"Markmiðið er ekki lengur að upplýsa um alla þætti málsins og draga fram gögn sem varpa skýru ljósi á öll meginatriði þess. Þvert á móti er allt kapp lagt á að ná fram sakfellingu og menn víla það ekki fyrir sér að ná þeim \"árangri\" með óheiðarlegum hætti. Það er ekki réttarkerfi sem Íslendingar vilja státa sig af og er umhugað um réttindi borgaranna.\"
Ólafur segist þó standa þokkalega keikur eftir dóminn, málið hafi engin áhrif haft á viðskiptasambönd sín eða bankaviðskipti: \"Það er vegna þess, eins og yfirlögfræðingur stórs bresks lögfræðifyrirtækis sagði, að það er alþekkt í heiminum að stjórnmálamenn leiti að blóraböggli fyrir eigin verknuðum. Þess vegna taka menn þetta ekki mjög alvarlega.\"