\"Þetta er ömurlegur staður og ömurlegt hlutskipti í lífinu að búa við. Maður hefur hins vegar þann valkost að gera hið besta úr stöðunni eða ekki,\" segir Ólafur Ólafsson, fangi á Kvíabryggju um vistina vestur á nesi.
\"Það er mjög sérstakt að hafa eytt síðustu áratugum í að hlaupa á eftir skottinu á sjálfum sér í kappi við tímann,\" segir hann í ítarlegu viðtali við nýjasta tölublað Viðskiptablaðsins um fangelsisvistina eftir þungan dóminn í Al Thani málinu - og segir að nú hafi hann allt í einu allan tímann í heiminum: \"Manni er kippt úr sambandi við umheiminn og sviptur öllu ferðafrelsi,\" segir hann og minnir á tilbreytingarleysið, ekki þurfi hann að fara út í búð að versla í matinn eða heimsækja vini og ættingja: \"Þetta er mjög sérkennileg upplifun og mikil breyting á lífinu.\"
Hann segist taka nýju hlutskipti sínu eins og hverju öðru verkefni: \"Ég er mættur í mína vinnu snemma á morgnana og vinn hér eins langan vinnudag og ég get. Ég hef notað tímann til þess að lesa mjög mikið, eitthvað sem aldrei er nægur tími til en skyndilega fékk ég hann,\" segir Ólafur ennfremur og kveðst einnig hafa verið mjög duglegur í líkamsrækt: \"Hér er Magnús Guðmundsson frábær crossfit-þjálfari, svo ég held að ég hafi ekki verið í jafn góðu fromi í áratugi,\" segir Ólafur, en Magnús fékk líka langan dóm vegna Al Thani málsins.
Hann segist fá fjölmargar heimsóknir: \"Ég fæ reglulega fjölskylduna og vini í heimsókn. Eins hafa margir af mínum erlendu samstarfsmönnum og vinum komið í heimsókn. Þeir koma og skoða Ísland og íslenskt fangelsi,\" segir Ólafur og tekur fram að allt hans fólk standi með sér: \"Eiginkona mín og fjölskylda hafa alltaf staðið við bakið á mér. Hvað fyrirtækin varðar bý ég að því að hafa feiknalega góða stjórnendur,\" segir athafnamaðurinn ennfremur og kveðst ekki óttast að verða gjaldþrota eins og Sigurður Einarsson sem einnig var dæmdur í sama máli og Ólafur. Hann segir sína fjárhagsstöðu vera í lagi og þótt Kaupþing hafi farið í skaðabótamál á hendur honum telji hann ekki miklar líkur á því að hann missi Samskip frekar en önnur fyrirtæki í hans eigu.