Ólafi darra var sagt upp í borgarleikhúsinu

Hinum vinsæla leikara, Ólafi Darra Ólafssyni, var sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu árið 2002. Ólafur Darri, sem meðal annars fer með aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Ófærð, rifjar þetta upp í löngu viðtali í Morgunblaðinu í dag. Ólafur segir að það hafi vissulega verið erfitt að kyngja uppsögninni á sínum tíma en eftir á að hyggja hafi hún orðið honum til góðs. Í greininni segir:

Ólafi Darra var sagt upp í Borgarleikhúsinu árið 2002, eftir að hafa verið fastráðinn þar í tvö ár, og fór þá að vinna sjálfstætt. Hann hefur sannarlega ekki setið aðgerðarlaus síðan því listinn er langur af fjölbreyttum verkefnum. Hann hefur leikið í leikritum, sjónvarpsmyndum og bíómyndum og eins og alþjóð veit státar hann af fjölmörgum hlutverkum vestanhafs. Ólafur Darri harmar ekki hlut sinn.

http://www.dv.is/frettir/2018/12/29/olafi-darra-var-sagt-upp-borgarleikhusinu-thetta-var-vissulega-fult/