Hagfræðingarnir Ólafur Arnarson og Ólafur Ísleifsson hafa gengið til liðs við sjónvarpsstöðina Hringbraut og byrja í kvöld með nýjan þátt um efnahagslega líðan samfélagsins.
Þátturinn verður til að byrja með sendur út annað hvert fimmtudagskvöld, en þar munu nafnarnir ræða og greina það sem hæst ber í samfélaginu á líðandi stundu og fá til sín gesti úr hringiðu þess.
Ólafarnir, en svo nefnist þátturinn, hafa á undanförnum árum komið fram í hátt í 300 þáttum í fjölda miðla hér á landi og fjallað þar á beinskeyttan hátt um brýnustu mál þjóðfélagsins svo eftir hefur verið tekið.
Ólafarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 í kvöld og endursýndir strax klukkan 22:30.