„Að nýta peningana sína vel! Frá janúar til loka ágústmánaðar á þessu ári voru meðalútgjöld okkar hjóna í okkar Nettó verslun 81500 krónur á mánuði. September mánuð dvöldum við á Tenerife. Þar keyptum við matvæli fyrir 49000 krónur - innifaldar í þeirri tölu eru sex ferðir út að borða!“
Þetta segir Björn Birgisson, sem búsettur er í Grindavík. Björn þekkja flestir Grindvíkingar og er hann þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum og láta þær í ljós á samfélagsmiðlum. Þá hefur frægð Björns aukist jafn og þétt í samræmi við skrif hans, sem víða er deilt og þá helst þegar hann skúbbar á undan stóru miðlunum.
Björn segir: „Er ekki hissa á að eldri borgarar Íslands yfirgefi ættjörðina sem þeir hafa gefið líf sitt og ævistarf - en uppskera að launum ekkert annað en skítkast, niðurlægingu og skerðingar af hálfu stjórnvalda.“
Innlegg Björns rímar við frásögn Önnu Kristjánsdóttur sem fékk nóg af okurlandinu og sagði að hún ætlaði ekki að láta stjórnvöld hafa af sér ævisparnaðinn. Hefur hún vetursetu á Tenerife í sól og blíðu, þar sem hún kemur lifað mannsæmandi lífi. Þar sé matur og húsnæði á aðeins brot af því sem það kostar í dýrasta landi Evrópu. Anna sagði:
„„Í dag er ég frjáls og get farið hvert sem er á meðan íslensk stjórnvöld ræna mig ekki lífeyrissparnaðinum mínum en það eru mínar helstu áhyggjur eins og er.“
Björn spyr síðan: „Hvar eiga eldri borgarar þessa lands að leita að norrænu velferðinni sem stundum er sagt að sé hér við lýði? Getur einhver svarað því?“