Ökumaðurinn með réttarstöðu sakbornings

Ökumaður bifreiðarinnar sem fór ofan á vegrið og fram af brúnni yfir Núpsvötn í lok síðasta árs er með réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á málinu. Þrír létust í slysinu, tvær konur og tæplega árs gamalt barn.

„Það að ein­hver hafi rétt­ar­stöðu grunaðs manns seg­ir í raun­inni ekk­ert annað en það að hann kunni að hafa með ein­hverj­um hætti brotið gegn um­ferðarlög­um þannig að hann hafi valdið mannsb­ana af gá­leysi“, segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í samtali við Mbl.is.

Að sögn Odds er lögreglan nú að rannsaka hvort ökumaðurinn hafi keyrt of hratt, keyrt ógætilega, hvort ökutæki hafi ekki verið í lagi og annað slíkt. Nú þegar liggur fyrir að ökumaðurinn hafi ekki verið ölvaður, blóðsýni hafi staðfest það.

Einnig sé lögreglan að rannsaka ökutækið með tilliti til þess hverjir farþeganna hafi notast við bílbelti, en ljóst liggur fyrir að hluti farþega hafi verið í bílbeltum og hluti þess ekki. „Það sést líka við krufn­ingu hvort áverk­ar séu eft­ir belti“, segir Oddur einnig í samtalinu við Mbl.is, en krufningu er ekki lokið.