Banaslys varð á Ingjaldssandsvegi, Sandsheiði í Gerðhamarsdal, laust fyrir 18:00 í gær. Veghefill sem var við vegheflun hafnaði utan vegar og stjórnandi veghefils lést.
Tildrög slyssins eru ókunn en lögreglan á Vestfjörðum hefur málið til rannsóknar, með aðstoð Rannsóknarnefndar samgönguslysa og Vinnueftirlits.
Ekki er hægt að birta nafn ökumanns að svo stöddu.