,,okkur skortir umhyggju og snertingu”

Íslendingar eru alltaf í símanum og tölvunni og líður illa af snertingarleysi og skorti á nánd um umhyggju. Margir eru líka einmana. Þetta kemur fram Í ,,Fólki með Sirrý” á Hringbraut í kvöld en þar ræða þær Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og Svava Magnúsdóttir græðari og heilsunuddari um líðan Íslendinga. Streita og svefnvandamál eru rótin að flestum kvillum hjá fólki sem kemur til þeirra. ,,Margir drekka upp í 10-12 bolla af kaffi á dag og geta svo ómögulega sofið” segir Anna Rósa grasalæknir. Fólk fær oft bara 5-10 mínútur hjá lækninum sínum en það er oft ekki nóg fyrir fólk sem pantar sér þá tíma hjá græðurum eða grasalækni. Þar fær fólk klukkutíma og hlutirnir eru skoðaðir heildrænt. Snerting og tími er oft það sem fólk þarf.  Þær ræða líka hvernig er að starfa sjálfstætt og skapa sér sín eigin atvinnutækifæri.

,,Fólk með Sirrý” er tekinn upp í glerskálanum við Aalto Bistro í Norræna húsinu og því einstaklega sumarlegur þáttur á dagskrá kl. 20:30 og endursýndur síðar um kvöldið og á morgun.