Á meðal fjölda nýrra sjónvarpsþátta á Hringbraut í haust er Dömuhornið í umsjá sjónvarpskonunnar Sirrýjar, en þátturinn verður nokkuð í anda Herrahorns Sigmundar Ernir sem slegið hefur í gegn á meðal landsmanna í sumar.
Dömuhorninu er, líkt og Herrahorninu ætlað að vera upplýsandi fræðsluþáttur um hvernig fólk getur borið sig betur og gert það besta úr því sem það hefur. Í tilviki Herrahornsins hefur karlmönnum verið kennt að girða sig betur í brók, en hvað Dömuhornið varðar verður fremur lögð áhersla á að kenna konum að draga fram dömuna í sér.
Sirrý mun í þáttum sínum, sem hefja göngu sína föstudagskvöldið 4. september, heimsækja fjölda verslana og ræða þar við verslunarkonur sem hafa margra ára og áratuga reynslu af dömuráðleggingum. Fjallað verður um að velja sér undirföt sem passa, umhirðu á skóm, val á sokkabuxum, skóm, fylgihlutum og öðru sem skreytir hverja konu, en einnig verða gefin góð ráð um hvernig konur geta borið sig betur og notið sín eins og þær eru.
Í lok hvers þáttar verða gefin hagnýt skvísuráð, að sögn Sirrýjar: \"Og nú leitum við til allra velunnara Hringbrautar,\" segir Sirrý í samtali við vefinn: \"Við viljum fá hagnýt skvísuráð frá sem flestum konum á öllum aldri, þessar einföldu ábendingar sem geta skipt okkur allar svo miklu, flýtt fyrir og fegrað hversdagslífið.\"
Að sögn Sirrýjar verður svo besta skvísuráðið valið í lok þáttaraðarinnar þegar líður á haustið - og verður vinningurinn ekki af verri endanum, svo sem síðar verður kynnt hér á Hringbraut.
Ábendingar um skvísuráð skulu berast á [email protected].