Ókeypis heilbrigðisþjónusta

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður og formannsframbjóðandi í Samfylkingunni, segist munu leggja mesta áherslu á heilbrigðismál nái hún kjöri til formanns í flokknum.

Hún segir að stefna eigi að ókeypis heilbrigðisþjónustu.

Hún segir vanda Samfylkingarinnar vera ærinn en segist bjartsýn á að flokkurinn eigi mikið inni.

Fari svo að Oddný verði ekki kjörin formaður reiknar hún með að verða áfram í kjöri til Alþingis.

Þetta og fleira kemur fram í Þjóðbraut í kvöld klukkan 21:00.