Þetta má ekki

Nú hefur komið í ljós að skýrsla meirihluta fjárlaganefndar um endurreisn bakanna – “einkavæðingu hina síðari”  er ekki lengur skýrsla í þeirra nafni. Guðlaugur Þór Þórðarsson, varaformaður nefndarinnar hefur tekið nafn sitt af úttektinni og núna er hún einungis í nafni Vigdísar Hauksdóttur, formanns nefndarinnar.

Þingskaparlög leyfa ekki slíkt. Það er að segja, Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir í viðtali við RÚV að stakir þingmenn geti ekki lagt fram skýrslur í eigin nafni. Skýrslan hefur þó verið send til Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og þá er að bíða og sjá hvað verður gert við plaggið þar. Sú nefnd hefur reyndar farið yfir hluta málsins áður undir stjórn Brynjars Níelssonar, þingmanns. Þar var niðurstaðan að ekkert athugavert sé samkvæmt lögum og reglum við uppgjör bankamálanna eftir hrun,

Kjósendur fylgjast með því að þingmenn sem gegna stórum póstum vita ekki hvað þingsköp leyfa og hvað ekki. Það er altént sú mynd sem blasir við á þessum tímapunkti í þessu fordæmalausa máli.