Ók ölvuð með ungabarn: var að brjóstfæða barnið þegar hún var handtekin

Það var nóg um að vera hjá lögreglunni á Þorláksmessu. Um sex leytið var tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 108, Háaleitis- og Bústaðarhverfi. Í dagbók lögreglu kemur fram að annar ökumaðurinn hafi verið ung ölvuð kona og var hún með ungabarn í bílnum.

Þegar lögreglu bar að var konan að brjóstfæða barnið. Konan var handtekin og vistuð í fangageymslu. Haft var samband við föður barnsins sem sótti barnið.

Þá var konan tilkynnt til Barnaverndar.

Klukkan 00:50 var kona handtekin sem vildi ekki yfirgefa veitingastað og var vísað út.  Þegar lögreglukona var að rétta konunni veski hennar og yfirhöfn þá sparkaði konan í lögreglukonu. 

Konan var handtekinn og færð á lögreglustöð en látin laus að lokum viðræðum.

 Klukkan þrjú síðastliðna nótt var svo tilkynnt um líkamsárás við bar í miðbænum. Í dagbók lögreglu segir:

„Maður kemur úr leigubifreið,  ræðst á tvo menn sem þar voru og lemur þá með flösku.  Árásarmaðurinn náði að hlaupa á brott.  Ekki er vitað um meiðsl árásarþola.“