Ók drukkinn með níu ára dóttur í bíl

Lögregla segir að ölvaður ökumaður hafi verið hand­tek­inn eftir akstur í Garðabæ síðdegis í gær. Það auki alvöru málsins að níu ára gömul dóttir mannsins var farþegi í bílnum.

Eftir því sem fram kemur hjá lögreglu var haft samband við ættingja sem tók barnið að sér en maðurinn var látinn laus eftir yfirheyrslu og blóðsýni. Þá segir lögregla að maðurinn hafi talað í síma á akstrinum án handfrjáls búnaðar. Málið hef­ur verið til­kynnt til Barna­vernd­ar en afbrot sem þessi eru litin mjög alvarlegum augum að sögn lögreglumanns sem Hringbraut ræddi við.

Hið vítaverða gáleysi ökumannsins í Garðabæ er ekki einsdæmi. Eitt versta dæmið sem  komið hefur upp hér á landi var 6. mars síðastliðinn þegar lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði  verulega ölvaðan ökumann með þrjú lítil börn í bifreiðinni. Maðurinn ók þá sendibifreið, sem einungis er ætluð fyrir tvo farþega, úr Hafnarfirði áleiðis til Keflavíkur. Á tímabili ók hann  á móti umferð á Reykjanesbraut við Straumsvík og skapaði með því stórfellda slysahættu. Nokkru síðar mætti lögregla bifreiðinni við Vogastapa. Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum og er lögreglubifreið var ekið upp að hlið bifreiðar hans kom í ljós að hann var að tala í símann við aksturinn. Hann nam ekki staðar fyrr en lögregla þvingaði bifreið hans út í vegaröxlina. 

Ökumaðurinn sofnaði ölvunarsvefni í lögreglubifreiðinni á leið á lögreglustöð. Börnin í bílnum voru tveggja, fjögurra og átta ára og án viðeigandi öryggisbúnaðar. Þau voru flutt á lögreglustöð í annarri lögreglubifreið og sótti aðstandandi þau þangað. Þá var Barnavernd Reykjanessbæjar gert viðvart um málið.