Ók bíl sínum út í ölfusá

Í gærkvöld og í nótt fór fram leit að manni sem talið er að hafi ekið bíl sínum út í Ölfusá um klukkan 22:00 í gærkvöld, að því er virðist af ásettu ráði. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um þetta og ummerki á vettvangi og brak í ánni studdu þann framburð að bíl hefði verið ekið í ána. Leit er nú haldið áfram. RÚV.is og Mbl.is greina frá.

\"\"

Hlé var gert á leitinni á fimmta tímanum í nótt en hún hófst að nýju í morgun af fullum þunga. Lögreglan á Suðurlandi telur sig vita hver það var sem fór í ána og hafa aðstandendur hans fengið aðstoð frá áfallateymi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi á Hringbraut var á vettvangi á Selfossi í gærkvöld og tók meðfylgjandi myndir. Hann lýsti aðstæðum svo: „Þetta voru rosalegar aðstæður í gærkvöldi að sjá björgunarsveitarmenn sigla á gúmmíbátum í flúðum á beljandi fljótinu við mjög erfiðar aðstæður. Svartamyrkur, hávaðarok og mikil rigning inn á milli. Svo var það þyrlan sem sveimaði 20-30 metra fyrir ofan yfirborðið, sem er engin hæð, og það í brjáluðum vindi. Þeir eru með mikla kastara sem lýstu ána að hluta til. En vatnið þarna er svo mikið og straumþungt að það er enginn séns fyrir nokkurn mann að lifa svona af.  Einnig hefur vatnsmagnið hækkað mikið undanfarna daga vegna leysinga í kjölfar mikilla rigninga.“

\"\"

Í samtali við Mbl.is segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, að veðrið muni stjórna framvindu leitarinnar í dag. „Þetta velt­ur tölu­vert á aðstæðum til leit­ar. Staðan verður bara tek­in reglu­lega yfir dag­inn. Lögreglan á Suður­landi tek­ur end­an­leg­ar ákv­arðanir um það hvort bætt verði í eða leit hætt ef til þess kem­ur.“