Ók á steyptan vegg við njarðargötu

Um klukkan 11:30 varð umferðarslys á gatnamótum Njarðargötu og Sóleyjargötu í miðborg Reykjavíkur. Bílstjórinn ók út af hringtorgi og beint á vegg.

Var áreksturinn nokkuð harkalegur og missti bílstjórinn meðvitund við höggið.

Bílstjórinn var fluttur á spítala en ekki er vitað um ástand viðkomandi þegar þetta er skrifað.

\"\"

\"\"

\"\"