Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá heimsækja Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi og Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður höfuðstöðvar Arion banka. Aðal viðmælandi verður Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri sem mun m.a. fara yfir langa sögu bankans sem nær allt að 130 ár aftur í tímann. Þá verður komið inn á samkeppnisumhverfi bankanna hér á landi og ójafnan leik á íbúðalánamarkaði eins og bankastjóri Arion banka telur eiga sér stað þar sem lífeyrissjóðir eru ekki skattlagðir eins og bankarnir. Auk þess verður rætt við nokkra af sérfræðingum bankans um þjónustu, gjaldeyrismál, starfsmannamál og markaðsviðskipti. Eitt af helstu útibúum bankans verður heimsótt þar sem nýtt greiðslumat hefur nýlega verið kynnt og tekur einungis 3 mín.
Ójafn leikur á lánamarkaði íbúðarlána
Fleiri fréttir
Nýjast