Óhugsandi að sigmundur sitji áfram!

Birgitta Jónsdóttir þingmaður pírata segir engan vafa leika á að hún muni beita sér fyrir því að vantrauststillaga verði lögð fram á hendur Sigmundi Davíð. Þetta segir Birgitta í samtali við Hringbraut.

Allir fjórir stjórnarandstöðuflokkarnir hafa rætt í sínum ranni um að leggja fram vantrauststillögu á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra vegna trúnaðarbrests milli hans og Alþingis í ljósi þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir um fjármál fjölskyldu hans. Málið sé risavaxið.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði á RÚV í gær að ráðherrann væri í erfiðri stöðu vegna umræðu um aflandsfélag í eigu eiginkonu hans og vill að hann skýri málið sem fyrst fyrir þjóðinni. Ásmundur tekur þannig undir gagnrýni samflokksmanns síns, Vilhjálms Bjarnasonar sem lýsti því yfir um helgina að nýfengnar upplýsingar um fjármál ráðherrans hefðu skapað mikil óþægindi í samstarfi stjórnarflokkanna. 
 

Forsætisráðherra hefur ekki orðið við ítrekuðum beiðnum fjölmiðla um viðtal um málið um helgina og ekki heldur svarað skriflegum fyrirspurnum þeirra vegna vegna málsins. 

Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV hefur vantrauststillaga komið til tals innan allra stjórnarandstöðuflokkanna á þingi. Flokkarnir hafa ekki rætt saman formlega um sameiginlega vantrauststillögu, en þeir vilja krefja forsætisráðherra svara við mörgum ósvöruðum spurningum um málið á þingi eftir páskafrí.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir óhugsandi að forsætisráðherra sitji áfram í ljósi upplýsinga sem fram hafi komið, og furðar sig á því að stjórnarþingmenn geri lítið úr málinu, sem snúist ekki um eiginkonu forsætisráðherra heldur ráðherrann sjálfan og hagsmuni hans, og sé risavaxið.