Óhugguleg þróun? „áhugavert að heyra frá fjármálaráðherra að jafnrétti kynjanna sé ekki áherslumál“

„[Bjarni] segir að þarna sé ríkisfyrirtæki auk þess að sveigja mjög frá eigendastefnu ríkisins. Það er reyndar enn áhugaverðara að heyra frá fjármálaráðherra að jafnrétti kynjanna sé ekki áherslumál í eigendastefnu ríkisins.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­málaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins um viðhorf hans um áætlun Íslandsbanka um að hætta viðskiptum við fjölmiðla sem ekki standist tiltekin skilyrði um kynjahlutföll viðmælenda og þáttagerðarfólks. Sagði Bjarni að það kæmi honum spánskt fyrir sjónir. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins.

Sigmundur benti á að Íslandsbanki væri ríkisbanki og með þessari ákvörðun væri bankinn að hafa áhrif á mannaráðningar sem og dagskrá fjölmiðla. Þá benti Sigmundur Davíð á að bankinn væri að beita fjármagni sínu sem væri í raun ríkisfé. Sigmundur Davíð spurði:

„Er þetta ekki hálf óhuggu­leg þróun?“

Bjarni svaraði:

 „Ætlar bank­inn, ef menn ætla að taka þessa stefnu og þróa þessa hug­mynda­fræði eitt­hvað lengra, að neita viðskipt­um við þá sem starfa ekki sam­kvæmt þess­ari hug­mynda­fræði en ætla að eiga viðskipti við bank­ann þannig að bank­inn hagn­ist á því? En þegar bank­inn þarf að líta á það sem kostnað eða út­gjöld þá eigi ein­hver önn­ur flokk­un við?“  

Þá bætti Bjarni við að það væru takmörk fyrir því hversu langt stjórnendur gætu siglt frá þeim áherslum sem birtast í eigendastefnu ríkisins.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, tjáir sig um frétt Morgunblaðsins á Facebook. Segir Þorsteinn að þetta sé áhugavert sjónarmið hjá Bjarna. Þorsteinn segir:

„Hann hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að bygging nýrra höfuðstöðva Landsbankans á einni dýrustu lóð landsins séu ráðherra óviðkomandi þar sem um rekstrarlega ákvörðun sé að ræða. En þegar ríkisfyrirtæki leggst á árarnar í jafnréttismálum er hann hugsi.“ Þá bætir Þorsteinn við að lokum:

„[Bjarni] segir að þarna sé ríkisfyrirtæki auk þess að sveigja mjög frá eigendastefnu ríkisins. Það er reyndar enn áhugaverðara að heyra frá fjármálaráðherra að jafnrétti kynjanna sé ekki áherslumál í eigendastefnu ríkisins.“