Ef erlendir aðilar kaupa 95 prósent hlut kröfuhafa Glitnis í Íslandsbanka mega þeir ekki selja íslenskum aðilum bankann aftur næstu fimm árin. Þetta kemur fram í erindi sem kröfuhafarnir sendu stjórnvöldum fyrir hádegi síðastliðinn mánudag, skömmu áður en blaðamannafundur um áætlun stjórnvalda um losun hafta hófst.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag og segir að skilyrðið sé komið frá kröfuhöfunum sjálfum, ekki Íslandsbanka, í því skyni að fá sem mest af virði sölu bankans til erlends aðila. Þar er haft eftir Páli Eiríkssyni, sem situr í slitastjórn Glitnis, að hann túlki fyrrgreinda grein í bréfi kröfuhafa til stjórnvalda þannig að í þessu felist að Íslandsbanki verði ekki í eigu innlendra aðila næstu fimm árin. „Þú sérð það nú bara á þessari til kynningu sem er á vefnum hjá ráðuneytinu að þar eru menn að undirgangast það að bankinn verði ekki í eigu innlendra aðila að minnsta kosti næstu fimm árin,“ segir Páll við Fréttablaðið.
Kjarninn greindi frá því á mánudag að búist sé við því að erlendir fjárfestar í Íslandsbanka verði kynntir til leiks í næstu viku. Viðræður við nokkra hópa hafa staðið yfir um nokkurra mánaða skeið og þeir sem hafa sýnt mestan áhuga koma annars vegar frá löndum við Persaflóa í Mið-Austurlöndum og hins vegar frá Kína. Samkvæmt heimildum Kjarnans er um að ræða risastór fyrirtæki sem eiga þegar hluti í alþjóðlegum bönkum. Einhverjir hópanna rituðu undir viljayfirlýsingu um kaup á bankanum í febrúar síðastliðnum.