Óhapp varð á flugeldasýningu í gær

Veðurfræðingar spá nú besta skotveðrinu á gamlárskvöld á Norðurlandi.

Björgunarsveitir landsins byggja afkomu sína að stóru leyti á flugeldasölu og er mikil stemmning nú fyrir norðan að sögn seljenda flugelda hjá Björgumnarsveitinni Súlum.

Í gærkvöld fór fram sérstök söluflugeldasýning á Eyrinni á Akureyri sem Súlur stóðu að. Óhapp varð þegar einni flauginni var skotið upp en hún kom niður aftur skammt frá áhorfendum eða um 50 metra og sprakk á jörðu niðri.

Enginn slasaðist en smástress skapaðist hjá sumum nærstöddum.

Í ljósi þess að eitthvað getur alltaf farið úrskeiðis og jafnvel hjá fagmönnum brýnir björgunarsveitarfólk landsmenn til að nota hlífðarbúnað og sýna ítrustu aðgæslu.

Spáð er á gamlárskvöld býsna stífri suðvestanátt og snjókomu nema í Vestmannaeyjum. Hægastur vindur verður á Akureyri, nálægt logni á miðnætti en 5-7 metrum í Reykjavík.