Undir lok forsetatíðar Kristjáns Eldjárns var stjórnarkreppa á Íslandi. Guðni Th. Jóhannesson, núverandi forseti, skrifaði fyrir nokkrum árum um stjórnarkreppuna og aðkomu forsetans, Kristjáns Eldjárn, að henni.
„Í þessari stjórnarkreppu sýndi Kristján Eldjárn mikið langlundargeð. Íhlutunarsamari forseti hefði verið fyrri til að taka í taumana þegar sýnt var að menn höfðu ratað í ófæru. Á hinn bóginn lá vandi Kristjáns í því að leiðtogar stjórnmálaflokkanna gengu tregir til viðræðna,“ skrifaði Guðni.
Svo fór að Kristján vann að myndun utanþingsstjórnar. „Kristjáni Eldjárn var hins vegar nóg boðið. Hann gerði leiðtogum Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks ljóst að kæmu þeir sér ekki saman um einhvers konar stjórn sem gæti staðið af sér vantraust á Alþingi myndi hann skipa utanþingsstjórn. Jóhannes Nordal féllst á að veita henni forstöðu. Þeir Kristján veltu fyrir sér ráðherraefnum. Að kvöldi 11. október hafði forseti samið tilkynningu um að hann hefði valið þessa leið í neyð, „þar sem ég fæ ekki séð neina möguleika á að unnt sé að mynda þingræðislega ríkisstjórn en á hinn bóginn má ljóst vera að starfsstjórn fær ekki ráðið við þau verkefni sem nú blasa við“.“
Þarna er átt við erfiða stöðu í efnahagsmálum, verðbólga var tugi prósenta og því mjög aðkallandi að ný ríkisstjórn tæki við.
Tveir voru í framboði 1968. Kristján Eldjárn og Gunnar Thoroddsen. Gunnar kom aldeilis við sögu í stjórnarkreppunni 1968.
„Á elleftu stundu kom Gunnar Thoroddsen sínum gamla keppinauti í forsetakjöri til bjargar. Með fulltingi nokkurra annarra þingmanna Sjálfstæðisflokks myndaði Gunnar ríkisstjórn með Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki. Á mörkunum var að forseta bæri að veita brautargengi til þess en allt vildi hann vinna til að losna undan þeirri þján að skipa utanþingsstjórn. Svo mikil var gleði Kristjáns Eldjárns þegar ljóst var hvert stefndi að hann las inn á segulband sitt víðfræg vísuorð úr Oklahoma, söngleik Rodgers og Hammersteins: „Oh what a beautiful morning“, oh what a beautiful day. I’ve got a wonderful feeling, everything’s going my way.““
-sme