Friður, fámenni og einangrun auk ævintýraferða eru seglar í markaðssetningu fyrir nýtt lúxushótel sem verið er að reisa í Fljótum í Skagafirði. Ellefu svítur eru á hótelinu og verður dagskrá Íslandsferðarinnar kynnt vel stæðu fólki utan landsteinanna sem ævintýri fjarri heimsins glym. Íslendingur sem þekkir til byggingarinnar segir að í nýrri hugsun liggi mikil framtíð og fé.
Morgunblaðið greindi frá því í dag að bandaríska ferðaþjónustufyrirtækið Eleven Experience stefndi að því að opna lúxusgistihúsið næsta vor á Deplum eða DEPLAR FARM eins og staðurinn kallast á ensku. Er höfðað til þess að dalurinn sé afskekktur og stutt í næsta sauðfjárbú. Sætir tíðindum að á sama tíma og bygging fyrsta fimm stjörnu hótelsins fer fram á Hörpureitnum séu teikn á lofti um fleiri en eina lúxusgistibyggingu úti á landi, sumar afskekktar eins og í Fljótum. Svæði sem áður guldu fyrir einangrun virðast orðin sérstakt aðdráttarafl í hugum erlendra fjárfesta.
Tugir iðnaðarmanna eru nú að störfum í Fljótum við að byggja upp hótelið. Á Deplum verður úti- og innisundlaug, gufubað, vínkjallari, nuddpottar, þyrluflug og skíðaferðir.
Sex daga dvöl á Deplum kostar um 2 milljónir króna á mann.