Ögmundur: „ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst.“

„Herinn sem hvarf af landi brott árið 2006 er að snúa til baka. Og ef hann snýr til baka – og ég endurtek ef af verður, ef ekki verður gripið í taumana - þá verður það í boði Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Það er ömurlegra og alvarlegra en orð fá lýst.“

Þetta segir Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna. Á heimasíðu sinni gagnrýnir hann sinn gamla flokk harðlega. Nýlega var greint frá að til stæði að bandaríkjaher væri á leið aftur til landsins. Um þau tíðindi segir Ögmundur:

„Við vitum allt um dapurlega sögu Sjálfstæðisflokksins í þessu efni og tilhneigingu innan Framsóknar til undirgefni gagnvart NATÓ þótt þar hafi einnig löngum verið annar þráður og betri, oftar en ekki að vísu illgreinanlegur. Þá er VG eftir. En hvað heyrum við þaðan?“

Þá segir Ögmundur:

„Þar á bæ er hamrað á því að allt sé þetta öðrum að kenna. VG fái ekki neitt við ráðið, sé fórnarlamb. Ríkisstjórnin, 2009-13, sem VG átti aðild að, hafi umborið “loftrýmiseftirlit” og síðar hafi þjóðaröryggisstefna með aðildina að NATÓ sem eina af grunnstoðunum verið samþykkt á Alþingi. VG hafi einn flokka ekki samþykkt þennan þátt þjóðaröryggisstefnunnar heldur setið hjá.

Það er mikið rétt, hjáseta var það sem boðið var upp á. Því miður beitti flokkurinn sér ekki sem skyldi gegn þessari fráleitu stefnu.“

Þá segir Ögmundur að lokum: „Hvað sem líður svokallaðri þjóðaröryggisstefnu, sem þarfnast að sjálfsögðu stöðugrar endurskoðunar í ljósi þróunar í heimsmálum, þá er ekkert sem réttlætir þá hernaðaruppbyggingu sem nú stendur fyrir dyrum í landinu. Almenn “þjóðaröryggisstefna” dugir ekki til að réttlæta umfangsmikla hernaðaruppbyggingu hér á landi; leyfir ekki að stríðsglæpamönnum sé heimilað að hreiðra um sig í landinu að nýju. Ekki undir neinum kringumstæðum!“