Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Vinstri Grænna, kallar eftir því að vinstri flokkar komi saman og reki saman vinstri stefnu, í grein sem birtist á heimasíðu hans.
Ögmundur kallar eftir því að haldinn verði fundur eins og sá sem var haldinn á Hótel Borg árið 1995. Á þeim fundi komu saman vinstrimenn sem vildu efla samstarf á milli þeirra flokka sem ráku vinstri stefnu hérlendis.'
Ögmundur hefur nú þegar boðað til fundarins, en hann verður haldinn næsta laugardag klukkan 15 á Hótel Borg.
Kall Ögmundar kemur til vegna þess að hann sér fortíðina vera að endurtaka sig í dag. Margir yfirgáfu Alþýðuflokkinn á sínum tíma eftir að flokkurinn hafði setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum á árunum 1991 til 1995. Þeir sem yfirgáfu flokkinn litu svo á að flokkurinn hafi rofið raðir félagshyggjufólks með því að ganga í samstarf með Sjálfstæðisflokknum.
Ögmundur sér söguna endurtaka sig á þann hátt að Vinstri Grænir eru í dag í þeirri stöðu sem Alþýðuflokkurinn var áður og ef vinstrið geri ekki neitt þurfi ekki speking til að sjá hvert stefnir.
Hann lítur svoleiðis á að fjárfestum sé hleypt að hvert sem þeir vilja, auðlindum sé stolið og að Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið sjái um allt erlent sem snýr að Íslandi.
Þessu sé öllu hægt að breyta ef vörn er snúið í sókn.
„Vinstrafólk á ekki að láta drepa í sér logann heldur glæða hann. Við þurfum að læra af reynslunni og snúa vörn í sókn og þá sókn þarf að hugsa til langs tíma,“ segir Ögmundur að lokum í greininni.