Ögmundur: fjöldauppsagnir á rúv

Ekkert lát er á fjárlagaumræðunni á Alþingi og er alla jafna fundað vel fram á nótt, rétt eins og í gærkvöld þar sem minnhlutinn velti við hverjum steini í fjárlagatillögum næsta árs; mest bar þó á ótta við slæm kjör lífeyrisþega og bágan hag Landspítala og RÚV.

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kveðst sannfærður um að framundan sé aðför hægriaflanna í Framsókn og Sjálfstæðisflokki að almannaþjónustu Ríkisútvarpsins. Hann ræddi alvarlega stöðu RÚV úr pontu þingsalarins í nótt og kvaðst þar óttast fjöldauppsagnir hjá ríkismiðlinum í upphafi næsta árs. 

Margir þingmenn úr röðum minnihlutans eru sömu skoðunar og Ögmundur, en þeir hafa lagt fram breytingartillögu við fjárlagafrumvarp næsta árs um óbreytt útvarpsgjald. Þar er lagt til að útvarpsgjaldið árið 2016 verði 17.800 krónur og tekjur af því og framlög til Ríkisútvarpsins verði því 303 milljónum króna hærri en reiknað hafði verið með.

Í umræðum gærkvöldsins sagði Ögmundur að það væri staðreynd að ef fjárlög færu óbreytt í gegnum þingið og ekkert frumvarp kæmi frá menntamálaráðherra um óbreytt útvarpsgjald, þá standi RÚV frammi fyrir fjöldauppsögnum starfsfólks.