Ummæli Semu Erlu Serdar, formanns flóttamannahjálparsamtakanna Solaris, um úrslitin í Eurovison á laugardag hafa vakið athygli. Á facebook síðuna sína skrifar hún: „Í gær var 15 ára palestínskur drengur skotinn í höfuðið af ísraelska hernum. Á meðan Ísraelar fagna sigri í Eurovision berast fréttir af því að hann hafi látist af sárum sínum. Með sigri Ísraels í Eurovision hefur Evrópa enn og aftur lagt blessun sína yfir fjöldamorð, landrán, hernám, pyntingar og ómannúðlega og ógeðfellda meðferð ísraelska hersins og ísraelskra stjórnvalda á saklausum palestínskum börnum, konum og mönnum. Þetta er ógeðslegt. Ógeðslegt.“
Útifundur þeirra sem berjast fyrir réttindum Palestínumanna verður haldinn á þriðjudag á Austurvelli en átök eru í Jerúsalem og margir Palestínumenn fallið þar sem flutningur á sendiráði Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem stendur nú yfir.
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland- Palestínu bætir þessu við á sinni síðu og hvetur fólk til að mæta á fundinn :
„Yfir 50 manns hafa verið myrtir af leyniskyttum Ísraelshers, óvopnað fólk sem mótmælir hernámi og krefst rétttar flóttafólks til heimkomu. Um 9000 manns hafa verið særð, margir mjög alvarlega, þannig að dánartalan hækkar stöðugt. Þá hafa margir verið skotnir í fætur og þurft að aflima fjölda manns. Borist hefur neyðarbeiðni um meira efni í gervifætur sem Félagið Ísland-Palestína hefur getað sent frá árinu 2009 með stuðningi Össurar Kristinssonar. Myndin hér að neðan er einmitt tekin heima hjá þeim sem fyrst fékk gervifætur frá okkur og hann þurfti tvo. Það vara mikil gleði þegar hann tók fyrstu sporin tveim klukkustundum eftir smíðina á staðnum. - En ég ætlaði að minna á útífundinn á þriðjudag, Salmann Tamimi Sema Erla Serdar og Ögmundur Jónasson flytja stutt ávörp. Fjölmennum kl. 17 á Austurvöll!”