Inga fær hljómgrunn

Inga Sæland segir að hún bjóði sig fram sem oddvita Flokks fólksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hún segist ekki vera byrjuð að máta sig við þingsmannsstólinn. 

Inga áréttar að Flokkur fólksins ætli fram í Reykjavíkurborg með hana sem oddvita. Inga segir að fundurinn í Háskólabíói sýni að Flokkur fólksins sé að ná hljómgrunni meðal landsmanna.

Flokkur fólksins mælist nú með 6,1% fylgi í síðustu könnun MMR.

Þetta er betra fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir Björt framtíð og Viðreisn ná. Hvorugur þessar flokka næði mönnum á þing ef kosið væri núna.

Flokkur fólksins bauð fram í fyrsta sinn í Alþingiskosningnum árið 2016. Inga Sæland er fyrsti formaður flokksins.  Flokkurinn hlaut 3,5% atkvæða í koningunum en engan þingmanna en fékk næg atkvæði til að vera núna á ríkisstyrk. Framkvæmdastjóri Flokks fólksins er Sigurjón Arnórsson.

Inga Sæland kynnir sig sem landsbyggðastúlku sem er fædd og uppalin á Ólafsfirði. Hún sé baráttukona og réttlætissinni sem vill leggja sitt að mörkum til að útrýma mismunun og fátækt og spillingu.  Inga segir kjörorð sitt  \"Bjarstýni og bros bjargar deginum\".  

Inga hefur lengi sagt sínar skoðanir og hefur meða annars varað við íslamisma.

Inga skrifaði fyrir skemmstu um vopnaburð lögreglu og sagði að allar vestrænar þjóðir sem trúa á frelsi og lýðræði og jafnrétti kynjanna eru möguleg skotmörk hryðpjuverka eins og dæmin sanna.

Á heimasíðu Flokks fólksins er að finna lista yfir stefnumál flokksins og þar lýst er markmiðum flokksins og áherslum.

Efst á listanum er áhersla á að tryggja skal öryrkjum og eldi borgurum mannsæmandi afkomu. Fátækir eiga ekki að greiða skatta. Lífeyrissjóðakerfið skal endurskoðað. Fullt verð skal tryggja fyrir aðganga að auðlindinni.

Nánar www.flokkurfolksins.is  www.eyjan.pressanwww.mbl.is

[email protected]