Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, sagði í viðtali í gærkvöld á Þjóðbraut að í einfaldri athugun sem hann gerði á sínum eigin innkaupum hafi komið í ljós hve gríðarlega hátt verð er á matarkörfunni hér á landi. Guðmundur keypti inn sín vanalegu matvæli í Kaupmannahöfn á dögunum, í lágvöruverslunum og útkoman varð sú að verðið á vörunum var um 50 prósent lægra en í lágvörubúðunum í Grafarvoginum sem Guðmundur kaupir vanalega sinn mat í. Einfaldur samanburður og merkilegar niðurstöður.
Þátturinn er endursýndur á Hringbraut í dag og einnig sjáanlegur hér á vef stöðvarinnar.