Ofurtollar á snakki felldir niður

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til í nýju nefndaráliti að tollar verði felldir niður af snakki, þar með töldu kartöflunasli. Snakkið ber ofurtoll, eða 59%, að því er fram kemur í áliti Félags atvinnurekenda sem hefur barist fyrir afnámi snakktollsins um árabil.

Forsvarsmenn félagsins segja einsýnt að verð til neytenda á vörum á borð við kartöfluflögur muni lækka umtalsvert við þessa breytingu, sem til stendur að gera um áramótin. Af einhverjum ástæðum nái breytingin þó ekki yfir snakk sem er framleitt úr kartöflumjöli. Snakk framleitt úr kartöflumjöli sé í öðrum tollflokki og beri líka fráleitlega háan toll, eða 42%. Undir þann flokk falli vinsælar vörur eins og til dæmis Pringles-snakkið.

\"FA fagnar eindregið þessari tillögu,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA: \"Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar viðurkennir að þessi tollur hafi verið alltof hár. Tollaniðurfellingin ætti að vera víðtækari, en með þessu er þó höggvið nýtt skarð í matartollmúrana. Þarna er viðurkennt að það er ekkert vit í að leggja ofurtolla á innflutning sem keppir ekki við neina innlenda framleiðslu. Með slíkri tollheimtu er ekki verið að vernda neitt heldur eingöngu að skaða neytendur, sem dirfast að leggja sér erlend matvæli til munns. Í því felst mikið gerræði.“

Í tilkynningu félagsins segir að um nokkurt skeið hafi því verið haldið fram að þessir tollar séu í raun ólögmætir. Nokkur innflutningsfyrirtæki hafi höfðað mál gegn ríkinu vegna innheimtu snakktollanna og krafist endurgreiðslu þeirra. Fyrirtækin hafi tapað því máli í héraði en Ólafur telji einsýnt að sterkari rök séu fyrir því að málið vinnist í Hæstarétti þegar löggjafinn hafi viðurkennt að tollarnir hafi verið ómálefnalega háir.

Félagið bendir á að í frumvarpinu um ýmsar forsendur fjárlaga hafi verið að finna aðra tillögu um niðurfellingu matartolls, þ.e. að nokkrar tegundir af mjólkurlausum ís beri ekki tolla. Ekki hafi verið tekið mark á athugasemdum FA og fleiri samtaka um að ekki væri nógu langt gengið í niðurfellingu tollanna, en frostpinnar beri til dæmis áfram ofurtolla: \"Nefndin segir að markmið breytinganna sé að „stuðla að því að þeir sem ekki neyta mjólkuríss af einhverjum ástæðum verði í sambærilegri stöðu og þeir sem neyta íss úr mjólkurafurðum“ Af hverju er þá til dæmis ís úr kókosmjólk ekki inni í upptalningunni á þeim vörum sem tollar verða felldir niður af?“ spyr Ólafur og undrast ósamræmið í þessum efnum.