Lögregla hafði afskipti af manni á vespu í Hlíðunum klukkan hálf eitt í nótt. Maðurinn reyndist ofurölvi og var kærður fyrir ölvunarakstur og akstur án réttinda.
Maðurinn var með stórt hátalarabox með sér en skömmu áður hafði verið kvartað í lögreglu þarna nærri um hávaða frá manni með stórt hátalarabox.
Maðurinn var ekki með skilríki og gat að sögn lögreglu illa gert grein fyrir sér. Hann var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins, að því er segir í dagbók lögreglu.
Vespan var þá afskráð og ótryggð.