Ofurbakteríum fjölgar

Dauðsföll af völdum fjölónæmra baktería hafa aukist og er áætlað er að sýkingar af völdum ónæmra baktería gagnvart sýklalyfjum valdi um 700 þúsund dauðsföllum í heiminum á hverju ári, þar af 25 þúsund í Evrópu. 

 Sýklalyfjaónæmi er ein helsta ógn sem steðjar að lýðheilsu, matvælaöryggi og framþróun í heiminum í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).

Notkun sýklalyfja í heiminum hefur aukist, ekki síst í landbúnaði. Stöðugt koma fram nýjar kynslóðir ofurbaktería sem eru bakteríur sem sum sum jafnvel öll sýklalyf sem til eru geta ekki unnið á. Sýkingum í mönnum og dýrum fjölgar sem ekki er hægt að vinna bug á með sýklalyfjum.

Haldi þróunin áfram án aðgerða er áætlað að árið 2050 verði dauðsföll af völdum sýklalyfjaónæmra baktería um 10 milljónir árlega á heimsvísu.

Rætt er nú um hvert staðan er hér á landi. Íslenskur starfshópur, sem skipaður var af velferðarráðuneytinu og falið að leggja fram tillögur um aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi, mun kynna niðurstöður sínar í dag.