Ofsaveður á leiðinni: búið að breyta appelsínugulu í rautt - aldrei gerst áður

Búast má við ofsaveðri eftir hádegi á morgun, þriðjudaginn 10. desember og appelsínugular og gular viðvaranir verða í gildi um allt land. Nú hefur Veðurstofan breytt einu svæði á landinu í rautt. Það þýðir að Almannavarnir og Veðurstofan þurfa að funda til að gefa út slíka spá. Þetta er í fyrsta sinn sem rauði liturinn er notaður og ekki útilokað að fleiri gætu breytt um merkingu.

Á vef RÚV segir:

 „Viðvörunarstig hefur verið færð úr appelsínugulu yfir í rautt annað kvöld fyrir Strandir og Norðurland vestra. Þetta er í fyrsta sinn sem viðvörun er færð upp í rautt. Víðast annars staðar á landinu er appelsínugul viðvörun.“

Á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi segir að veðrið skelli fyrst á á Norðurlandi, en fikri sig svo suður um heiðar þegar líður á morguninn.

Er því beint til fólks að vera ekki á ferðinni og festa lausamuni niður.

\"\"