Búast má við ofsaveðri eftir hádegi á morgun, þriðjudaginn 10. desember og appelsínugular og gular viðvarnir verða í gildi um allt land.
Gera má ráð fyrir því að flestar strætóferðir á landsbyggðinni falli niður eftir hádegi á þriðjudag og gætu orðið óvirkar fram á miðvikudaginn 11. desember. Farþegar sem ferðast daglega með Strætó á landsbyggðinni er sérstaklega bent á að fylgjast með fréttum og skipuleggja ferðir sínar til og frá vinnu samkvæmt veðurspá.
Strætó á höfuðborgarsvæðinu
Líkur eru á að veðrið hægi á umferð og farþegar Strætó á höfuðborgarsvæðinu geta búist við seinkunum á morgun. Við mælum með að farþegar fylgist með staðsetningu vagna í Strætó appinu eða á heimasíðu Strætó áður en haldið er út á biðstöð.
Tvísýnt gæti orðið með nokkrar leiðir Strætó innan höfuðborgarsvæðisins, eins og leið 15 sem ekur Vesturlandsveg milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Stjórnstöð Strætó fylgist náið með stöðunni og tilkynnir um frávik sem kunna að verða á akstri.
Akstursþjónusta aldraðra og fatlaðra
Búast má við seinkunum hjá Akstursþjónustu fatlaðs fólks og aldraðra fyrir hádegi á morgun, þriðjudaginn 10. desember.
Eftir hádegi má gera ráð fyrir því að allur akstur þjónustunnar falli niður. Farþegar Akstursþjónustunnar eru því beðnir um að gera ráðstafanir og fylgjast með fréttum.