Rigningin þrengir að hellisheiði

Svo að segja linnulaus rigning svo dögum og vikum skiptir hefur gert það að verkum að ekki hefur verið hægt að mála línur á breikkaðan þjóðveginn um Hellisheiði með þeim afleiðingum að miklar umferðartafir verða þar daglega.

Ökumenn sem þurfa starfs síns vegna að fara daglega um heiðina segja að hálfgert ófremdarástand skapist á miðri heiðinni og allt niður í Hverahlíðarbrekku en þar er vegurinn einbreiður á meðan beðið er málningarvinnunnar - og engin leið að taka fram úr næsta bíl, enda búið að koma fyrir víravegriði milli akstursleiða á þessum kafla.

Ístak, sem annast verktöku á svæðinu hefur lokið við breikkun þessa fjölfarna þjóðvegar milli hringtorgsins við Hveragerði og gatnamótanna við Hellisheiðarvirkjun í Svínahrauni, en rigningin gerir það að verkum að ekki er hægt að klára verkið að fullu, svo sem fyrr segir.

Reiknað var með að Ístak skilaði af sér verkinu í næsta mánuði, en heildarkostnaður við breikkun vegarins er 1,3 milljarðar króna.  

Þess er eins beðið að uppstyttu geri.