Ófrávíkjanleg krafa um afturvirka kjarasamninga

Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness (VLFA), sem nýverið tóku þá ákvörðun að fara saman fram í kjaraviðræðum við atvinnurekendur, gera þá kröfu að samningar félaganna við Samtök atvinnulífsins (SA) verði afturvirkir til 1. janúar 2019, þegar núverandi samningar renna út. Félögin þrjú ákváðu á dögunum að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu (SGS) og vísa kjaradeilu sinni við SA til ríkissáttasemjara. Fréttablaðið greinir frá.

Fyrsti fundur milli Eflingar, VR, VLFA og SA fer fram á morgun 28. desember í húsakynnum ríkissáttasemjara að Borgartúni 21.

Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segir í samtali við Fréttablaðið að það sé ófrávíkjanleg krafa félaganna þriggja að samningarnir verði afturvirkir til 1. janúar á næsta ári. Eina af ástæðunum fyrir því segir hann vera að á meðal starfsmanna ríkisins séu fordæmi fyrir því að hafi kjör verið leiðrétt afturvirkt en því hafi ekki verið að heilsa á almennum markaði.

Hann bætir við að í gegnum tíðina hafi það gerst að samningar hafi ekki náðst fyrr en 4-5 mánuðum eftir að fyrri samningar hafi runnið út. Því gæti launafólk orðið af allt að fjórum milljörðum króna ef viðræður dragast um mánuð.

„Samkomulag um afturvirkni mun gera okkur kleift að nýta tímann vel. Verði fallist á það mun verða meira andrými til að semja. Ef ekki þá verður að hraða samningum. Afleiðingarnar geta orðið slæmar ef sátt næst ekki,“ segir Vilhjálmur að lokum í samtali við Fréttablaðið.