Veikar ríkisstjórnir meiri vandi en forsetinn

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, óskar nú öðru sinni eftir endurkjöri eftir hrun án þess að fara fram á að tillögur rannsóknarnefndarinnar um forsetaembættið verði settar á dagskrá. Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í nýjum pistli á hringbraut.is

\"Því er stundum haldið fram að forsetinn hafi beinlínis tekið sér vald umfram það sem mælt er fyrir um í stjórnarskrá. Það er misskilningur. Í réttarríki er það ekki hægt. Forsetinn hefur aldrei farið út fyrir það vald sem honum og ríkisstjórninni er sameiginlega fengið í stjórnarskrá.

Það sem gerst hefur er að núverandi forseti hefur gengið lengra en aðrir í því að nýta sér opinberlega innri veikleika í samsteypustjórnum þrátt fyrir sterka einstaklinga sem í þeim hafa setið. Í raun er ekki við forsetann að sakast þótt ráðherrarnir gefi áhrifavald sitt að einhverju leyti eftir til hans. Fremur mætti segja að þær ríkisstjórnir sem setið hafa síðustu tólf ár hafi í einstökum tilvikum verið of veikar innbyrðis bæði gagnvart forsetanum og almenningsálitinu,\" skrifar Þorsteinn Pálsson.

Forsetakosningarnar í sumar munu litlu breyta um tillögur rannsóknarnefndarinnar varðandi embættið að mati Þorsteins. Verði nýr forseti kjörinn geti hann aðeins óskað eftir að þær verði settar á dagskrá. Það sé ríkisstjórnin sem beri ábyrgð á því að þær verði að veruleika. Framgangur málsins ráðist með öðrum orðum í þingkosningum. Það tækifæri sé í haust.

\"Kjarni málsins er þessi: Forseti Íslands getur lagt sitt af mörkum til ábyrgrar stjórnsýslu og stjórnfestu. En það fer eftir styrk Alþingis og ríkisstjórnar á hverjum tíma hvort þau markmið nást. Menn ráða ekki bót á veikleika í þeim efnum í forsetakosningum heldur alþingiskosningum.

Öflugur forseti er ekki sjálfkrafa vandamál.  Það geta of veikar ríkisstjórnir hins vegar verið. Til þess að koma tillögum rannsóknarnefndar Alþingis í framkvæmd þarf til að mynda sterkari og samstilltari þingmeirihluta en verið hefur tvö síðustu kjörtímabil,\" segir Þorsteinn og vísar þar til þriggja atriði í Rannsóknarskýrslu Alþingis um forsetaembættið: Í fyrsta lagi að hlutverk forseta Íslands í stjórnarskrá verði betur skilgreint. Í öðru lagi  að setja eigi reglur um hlutverk og verkefni forseta Íslands og samskipti hans við önnur ríki og í þriðja lagi að æskilegt sé að forsetaembættið setji sér siðareglur og alveg sérstaklega varðandi þjónustu við viðskiptalífið.