Í næsta þætti af Skólinn okkar, sem sýndur verður á Hringbraut klukkan 20:30 þriðjudaginn 7. mars verður fjallað um tónlistarskóla landsins, stöðu þeirra og starf.
Í þættinum er kíkt á æfingu fyrir uppsetningu nemenda Söngskólans í Reykjavík á Töfraflautu Wolfgang Amadeus Mozart og farið í heimsókn í Brekkubæjarskóla á Akranesi þar sem tveir öflugir tónmenntakennarar halda úti kraftmikilli tónlistarkennslu.
Rætt er við Garðar Cortes, skólastjóra og stofnanda Söngskólans í Reykjavík, og Chrissi Guðmundsdóttir, tónlistarkennara við Tónlistarskóla Rangæinga, um mikilvægi tónlistarkennslu og það öfluga starf sem fram fer í tónlistarskólum landsins.
Ekki missa af áhugaverðum þætti á Hringbraut en þátturinn er í umsjón Margrétar Marteinsdóttur og Aðalbjörns Sigurðssonar. Hér má sjá sýnishorn úr þættinum.