Gengissig undanfarinna vikna segir sína sögu. Ástæður þess eru einfaldar. Már vildi að gengið sigi. Hann hefur þetta mikið (ekki alveg) í hendi sér. Þetta var aðvörun. Við Íslendingar erum þrútnir að reynslu af gengisleikfimi, skrifar Egill Helgason á síðu sína á Eyjan.dv.is.
Hann heldur áfram um ástæður gengissigsins sem hann segir einfaldar:
„Már vildi að gengið sigi. Hann hefur þetta mikið (ekki alveg) í hendi sér. Þetta var aðvörun. Við Íslendingar erum þrútnir að reynslu af gengisleikfimi. Krónan er jú það sem Marx myndi kalla öflugasta arðráðstæki hagkerfisins. Hún millifærir hávaðalaust fúlgur fjár frá almenningi til útflytjenda o.fl.
Þetta skrifar Þröstur Ólafsson á Fésbókina. Þröstur hefur marga fjöruna sopið í kjaramálunum. Til dæmis var hann eitt sinn framkvæmdastjóri verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Hann þekkir líka hina hliðina, hafandi starfað í ráðuneytum og verið í stjórn Seðlabankans. Þröstur líkir ástandinu nú við það sem var fyrir rúmum þrjátíu árum\".
Nánar á
http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/10/21/oflugasta-ardranstaeki-hagkerfisins-kronan/