Öfgar gagnrýna umfjöllun Vísis í gær þar sem greint var frá meintri söfnun dæmda kynferðisafbrotamannsins Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar, sem hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, til að fjármagna mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
Yfirskrift fréttarinnar á Vísi var upphaflega tilvitnin í Jóhannes sjálfan: „Ég er í fangelsi á Íslandi fyrir glæp sem á framdi aldrei“ en hefur nú verið breytt í „Meðhöndlarinn sem braut á fjölda kvenna ætlar með málið til Evrópu.“
Öfgar krefjast þess að fréttin verði tekin úr birtingu á vef Vísis og að fjölmiðillinn birti opinbera afsökunarbeiðni til þolenda málsins.
„Við teljum umfjöllunina vera með öllu siðlausa og brjóta gegn siðareglum blaðamanna ásamt því að geta einnig varðað við almenn hegningarlög,“ segja Öfgar og að ekki sé hægt að nota rökin „saklaus uns sekt er sönnuð“ fyrir skrifunum þar sem Jóhannes hefur nú þegar verið dæmdur á tveimur dómstigum í héraðsdómi og Landsrétti og þá hafi Hæstiréttur hafnað málskotsbeiðni hans.
Fréttablaðið greindi frá því í dag að Aníta Hauksdóttir, ein þeirra kvenna sem Jóhannes Tryggvi braut á, hefði fordæmt fréttaflutninginn. Hún sagðist ekki geta orða bundist vegna umfjöllunarinnar.
„Að fréttamenn og miðlar skuli leyfa sér að bjóða geranda mínum platform til þess að vanvirða mig, niðra mig og kalla mig beinlínis lygara. Að hann fái platform enn einu sinni til þess að reyna að ljúga upp á okkur þolendur, búa til einhverjar ógeðfelldar sögur um hvað hafi gerst,“ sagði Aníta meðal annars umfjöllun Vísis.
Grein Öfga má lesa í heild sinni hér.