Gengdarlaus offramleiðsla á kindakjöti er rót þess vanda sem blasir við sauðfjárbúskap að mati prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Vísir ræðir við Þórólf Matthíasson prófessor.
Þórólfur segir að íslenskir bændur verði að minnka framleiðsluna og laga sig að markaðnum í stað þess að seilast enn einu sinni í vasa skttborgara. Þórólfur segir í viðtalinu við Vísi að tími sé kominn til þess að bændur setjist niður og horfi á ranveruleikann eins og hann blasir við.
Rétt eins og hver önnur atvinnugrein. Og taki ákvarðanir út frá honum en ekki einhverri óskhyggju. Þórólfur telur að framleiðsla á kindakjöti sé á milli trjátíu til fimmtíu prósent umfram neyslu innanlands.
Ekki fari á milli mála að of mikið er framleitt af kindakjöti. Þórólfur segir að selja eigi kjötið sem háæðavöru á mörkuðum sem þekkja vöruna í Evrópu. Í staðinn hafa menn verið að leika sér í New York.
Nánar www.visir.is