Morgunblaðið greinir frá því á forsíðu í dag að hægt hafi á sölu lúxusíbúða í Reykjavík. Stutt er síðan svo mikill hörgull var á íbúðum í borginni að bókstaflega hver einasta kytra sem kom á markað seldist samdægurs. Fyrsta viðbragð byggingaverktaka við því ástandi var að setja af stað þróun mikils fjölda lúxusíbúðakjarna í Miðborginni.
Enda fékkst hæsta fermetraverðið á því svæði og margt fólk sem komið er yfir miðjan aldur hafði góð fjárráð í kjölfar sölu á stærri eignum í úthverfum. Nú er staðan orðin sú að framboð á lúxusíbúðum í göngufæri við kaffihús og veitingastaði í Miðborginni fara í sölu, en hreyfast ekki. Dæmi um slíkt er íbúðakjarninn á Hverfisgötu, fyrir aftan Laugaveg 77. Þar eru 29 íbúðir sem komu í sölu fyrir meira en ársfjórðungi, en einungis þrjár eru seldar, ef eitthvað er að marka vefsíðu verkefnisins.
Á sama tíma er enn mikil eftirspurn eftir minni, ódýrari íbúðum, enda margt ungt fólk að koma út á fasteignamarkaðinn, eftir langan tíma þar sem hálfgert frost ríkti á þeim sama markaði.