,,Ég kúgaðist og kastaði upp þegar ég horfði á klámið sem allir geta nálgast í símunum sínum. Klám er orðið svo miklu grófara og ofbeldisfyllra en áður og það hefur áhrif inn í parasambönd, inn í vændisheiminn og jafnvel inn í heim barna sem geta séð hart klám í símunum sínum\" segir Anna Bentína Hermansen frá Stígamótum. Þetta er alvarlegt vandamál sem sérfræðingar Stígamóta verða mjög varir við. Rætt er um klám, ofbeldi og sjálfsjálparhópa Stígamóta í ,,Fólki með Sirrý\" á Hringbraut miðvikudag kl. 20:30. Módel Stígamóta virkar greinilega því fólk sem þangað kemur segist fá nýtt og betra líf. Rætt er um starfið og aðstoðina sem fólki stendur til boða ókeypis. Anna Bentína Hermansen, Erla Björg Kristjánsdóttir og Hjálmar Gunnar Sigmarsson eru gestir hjá Sirrý í kvöld.